Stutt kynning
Ég hef unnið við sálfræðimeðferð og mannþroska í yfir fjóra áratugi. Mín eigin vegferð hófst þegar ég, sem ungur maður, gekkst undir meðferð og hóf að hugleiða. Í dag bý ég á Indlandi, þar sem ég hef kosið einfaldara líf með meiri einbeitingu að hugleiðslu og dýpri skilningi á mannlegu eðli. Þessari innsýn vil ég gjarnan deila með öðrum.
Þú hefur þegar allt sem þú þarft –
mitt hlutverk er að hjálpa þér að uppgötva það.
Hagnýtar upplýsingar
- Hvert viðtal (50 mínútur) kostar kr. 20.000-.
- Greiðsla fyrir viðtöl fer fram með millifærslu að samtali loknu.
- Greiðsla þarf að hafa borist fyrir næsta áætlaða viðtal.
- Tilkynna skal um afbókanir eigi síðar en klukkan 16:00 daginn fyrir pantað samtal.
- Ef afbókun berst seint eða ef skjólstæðingur mætir ekki verður fullt gjald innheimt.
- Fyrsta viðtal (10-15 mínútur) er án endurgjalds.



